Sex af hverjum tíu vilja banna sjókvíaeldi

Alls 57,4% landsmanna telja að banna eigi laxeldi í opnum sjókvíum við Ísland. Um fimmtungur vill leyfa það áfram en svipað hlutfall segir hvoruga fullyrðinguna lýsa viðhorfi sínu. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í skoðanakönnun sem Gallup vann fyrir Íslenska náttúruverndarsjóðinn og samstarfssamtök. Í könnuninni kemur fram að andstaða við sjókvíaeldi fer vaxandi. Tæplega tveir af hverjum þremur landsmönnum eru neikvæðir gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum við Ísland. Vísir fjallar um þetta.
Meirihluti telur einnig að villtum íslenskum laxastofnum stafi hætta af sjókvíaeldi. Alls meta 72,8% hættuna mikla, þar af 37,5% mjög mikla og 35,3% frekar mikla. Í könnuninni var einnig spurt um viðhorf til meðferðar á eldislaxi. Tæplega sex af hverjum tíu, eða 58,8%, telja meðferð eldislaxa í sjókvíaeldi almennt slæma en 16,6% telja hana góða.
Af þeim sem eru neikvæðir gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum nefna flestir hættu á að lax sleppi eða að kvíar haldi ekki, 34,1%. Um 31,5% nefna hættu á blöndun við villta laxinn og 31,2% mengun.
Þá telja 80,9% að rekstrarákvarðanir í sjókvíaeldisfyrirtækjum ráðist meira af hagsmunum eigenda en samfélagslegri ábyrgð.
Könnunin var framkvæmd dagana 5.–19. febrúar 2026. Úrtakið var 1.867 manns 18 ára og eldri af öllu landinu, handahófsvaldir úr viðhorfahópi Gallup. Alls svöruðu 836 og var þátttökuhlutfall 44,8%.

