Blængur landar 730 tonnum í Hafnarfirði

Deila:

Frystitogarinn Blængur NK er að landa í Hafnarfirði í dag eftir 25 daga veiðiferð. Aflinn nemur 730 tonnum upp úr sjó, eða rúmlega tuttugu þúsund kössum af frystum fiski, og er verðmæti hans 465 milljónir króna. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

Haft er eftir Sigurði Harði Kristjánssyni skipstjóra að túrinn hafi gengið vel. „Þetta var í reyndinni fínasti túr og það var þokkalegt nudd megnið af honum. Veiðar hófust á Breiðdalsgrunni fyrir austan, síðan var haldið suður fyrir land í leit að ufsa og loks endað á Halasvæðinu út af Vestfjörðum. Það verður að segjast að miðað við árstíma var veðrið tiltölulega gott,“ segir Sigurður Hörður.

Aflinn var blandaður, mest af ufsa en einnig þorskur, ýsa, karfi og gulllax. Þá varð vart við töluvert af loðnu í veiðiferðinni. „Loðna sást mjög víða í veiðiferðinni og það er mun meira af henni en við höfum lengi séð. Það voru góðar loðnutorfur bæði fyrir austan og vestan. Fiskurinn þéttir sig á eftir loðnunni og þá verða skilyrði hagstæð til veiða. Þessi loðnugegnd gefur góð fyrirheit um komandi vertíð,“ segir Sigurður Hörður.

Fram kemur á vef Síldarvinnslunnar að Blængur muni halda aftur til veiða á morgun.

Deila: