Framlengja umsóknarfrestinn

Vakin er athygli á að umsóknarfrestur í Matvælasjóð hefur verið framlengdur til miðnættis 4. mars 2026. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.
Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvæla. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.
Nánari upplýsingar má finna á síðu Matvælasjóðs.

