Friðunarsvæði og hreyfanleiki nytjafiska

Deila:

Hafrannsóknastofnun stendur nú fyrir rannsókn á áhrifum friðunar á aðgengi og veiðanleika nytjafiska og er verkefnið styrkt af verkefnissjóði sjávarútvegsins. Markmiðið er að kanna hvernig fiskar nýta friðuð svæði og hvaða áhrif slíkar lokanir hafa á afla. Verkefnið fellur jafnframt að skuldbindingu Íslands um að vernda 30% hafsvæðisins fyrir árið 2030.

Rannsóknin hófst haustið 2025 með leiðöngrum þar sem fiskar voru merktir innan og í nágrenni við friðuð svæði. Notast er við rafeindamerki sem skrá þrýsting, það er dýpi, og hita á tíu mínútna fresti. Þegar fiskar endurheimtast og merkjum hefur verið skilað til Hafrannsóknastofnunar er hægt að áætla ferðir þeirra með því að tengja saman gögn um dýpi og hitastig úr merkjunum við umhverfismælingar og kortlagningu hafsbotns.

Farið var í tvo leiðangra. Í þeim fyrri, um borð í Páli Jónssyni, voru 218 fiskar merktir við suðausturland. Í þeim síðari, um borð í Árna Friðrikssyni, voru 76 fiskar merktir vestan við landið. Leitast var við að merkja sem flestar tegundir og alls voru merktar 11 tegundir: þorskur, ýsa, ufsi, keila, steinbítur, hlýri, skötuselur, skarkoli, skata, lúða og áll.

Tvö merki hafa þegar verið endurheimt. Annað var úr ýsu og er það í fyrsta sinn sem rafeindamerkt ýsa hefur verið endurheimt við Ísland. Hún var merkt á Mýragrunni og ferðaðist að minnsta kosti 26 kílómetra á 75 dögum. Hitt merkið var úr hlýra sem merktur var vestan við land og hafði hann ferðast hið minnsta sjö kílómetra á 60 dögum.

Deila: