Collins Seafoods birgir ársins

Sölu- og dreifingafyrirtækið Collins Seafoods Ltd. í Bretlandi, sem er dótturfélag Samherja, hlaut verðlaunin Supplier of the year, birgir ársins, á hátíðinni The National Fish and Chips Awards 2026 sem fram fór á Park Plaza Westminster Bridge hótelinu í Lundúnum fyrr í vikunni. Þetta kemur fram á vef Samherja.
Hátíðin er haldin af samtökunum The National Federation of Fish Friers og hefur verið fastur liður í tæpa fjóra áratugi. Collins Seafoods selur og dreifir sjófrystum flökum í mið- og norðurhluta Englands til fjölda viðskiptavina, einkum fish and chips veitingastaða sem selja þjóðarrétt Breta, fisk og franskar.
Samherji hf. á 50% eignarhlut í sölufélaginu Seagold Ltd. sem er móðurfélag Collins Seafoods. Orri Gústafsson framkvæmdastjóri Seagold og stjórnarmaður í Collins Seafoods segir verðlaunin kærkomna viðurkenningu.
„Collins Seafoods hefur verið mikilvægur hlekkur í sölustarfsemi Samherja í Bretlandi til margra ára. Það hefur verið skýr stefna okkar að nálgast neytendur eins mikið og hægt er og dýpka þannig þekkingu okkar á því hvernig við getum bætt þjónustuna og vöruúrval. Þessi verðlaun eru staðfesting á því að við erum að vinna hlutina rétt og viðurkenning á því að við bjóðum upp á fyrsta flokks hráefni og veitum viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu. Við erum afskaplega stolt af þessum verðlaunum og þau endurspegla staðfestu og vinnusemi starfsfólks Collins Seafoods. Ég óska starfsfólki fyrirtækisins innilega til hamingju með verðlaunin. Þau eru sannarlega vel að þeim komin,“ segir Orri.

