Tillögur um eflingu strandsiglinga

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra fékk í gær afhenta skýrslu starfshóps um strandsiglingar undir yfirskriftinni Strandsiglingar í alfaraleið – hvað þarf til? Þar leggur hópurinn fram sjö tillögur um aðgerðir stjórnvalda sem ætlað er að styrkja forsendur fyrir strandsiglingar og vöruflutninga á sjó. Tillögurnar verða nú teknar til skoðunar í ráðuneytinu.
Að mati starfshópsins munu auknir strandflutningar auka öryggi á þjóðvegum, draga úr kostnaði ríkisins við viðhald vegakerfisins vegna þungaflutninga og styðja við aðgerðir í loftslagsmálum. Í skýrslunni er bent á að frá síðustu aldamótum hafi landflutningar að verulegu leyti tekið við af strandflutningum og að nú sinni aðeins eitt félag reglubundnum strandsiglingum hér á landi. Telur hópurinn að þróunin megi meðal annars rekja til hækkunar opinberra gjalda á strandsiglingar á undanförnum árum.
Þá segir að nauðsynlegt sé að endurskoða kolefnisálögur á strandflutningum þar sem kolefnisspor þeirra sé minna en landflutninga. Heildstæð nálgun sé mikilvæg til að draga úr vexti landflutninga, meðal annars með stefnumótun, efnahagslegum hvötum og endurskoðun á skipulagi flutningakerfisins. Langstærstur hluti vöruflutninga hér á landi fari fram með stórum bifreiðum um þjóðvegi og hafi álag á vegi aukist hratt, þar á meðal vegna umferðar þungra vöruflutningabíla. Það auki umhverfisáhrif, viðhaldskostnað og dragi úr umferðaröryggi.
Í skýrslunni kemur fram að Vegagerðin telji innviðaskuld í þjóðvegakerfinu nema um 180 milljörðum króna og að hún megi að verulegu leyti rekja til þungaflutninga á vegum landsins. Verði ekkert að gert sé hætt við að landflutningar haldi áfram að aukast og kostnaður við vegakerfið vaxi umtalsvert á næstu árum.
Helstu tillögur starfshópsins
Starfshópurinn leggur til eftirtaldar tillögur um aðgerðir til að efla strandsiglingar með vöru:
- Öll kolefnisgjöld af reglubundnum strandsiglingum verði lögð af þar til komnar eru raunhæfar lausnir til orkuskipta í siglingum stærri skipa. Nýtt fyrirkomulag endurgreiðslu hluta kolefnisgjalda dugir að mati starfshópsins ekki til að efla strandsiglingar.
- Stjórnvöld beiti sér fyrir því að skip í reglubundnum strandsiglingum hér við land verði utan ETS kerfisins með sama hætti og innanlandsflug er utan þess.
- Vitagjöld verði felld niður af skipum sem bjóða upp á reglubundnar strandsiglingar.
- Hafnayfirvöld leysi skip sem eru í reglubundnum strandsiglingum frá hafnsöguskyldu og gjaldakafli hafnalaga verði endurskoðaður með það að markmiði að gera höfnunum mögulegt að styðja betur við þróun strandflutninga.
- Vegagerðin hraði mati á kostnaði og ábata vegna landflutninga við þjóðvegakerfið og því verði lokið eigi síðar en árið 2027. Þær upplýsingar verði nýttar við stefnumótun stjórnvalda varðandi vegakerfið, losun gróðurhúsalofttegunda og umferðaröryggi.
- Árvekni stjórnvalda í málefnum strandflutninga verði aukin með formlegri samvinnu Vegagerðarinnar og Hafnasambands Íslands undir forystu innviðaráðuneytisins í samráði við hagaðila, þar sem fylgst er með þróun vöruflutninga og gerðar tillögur um viðbrögð stjórnvalda eftir því sem ástæða er til og tök eru á. Slíkt samstarf mun skapa vettvang til að meta rekstrarforsendur, innviði, regluverk og markaðsforsendur strandsiglinga.
- Tekið verði til skoðunar að færa inn sem aðgerð í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum að efla strandflutninga.
