Hrognavinnsla að hefjast fyrir austan

Frystingu á Japansloðnu lauk í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað á laugardaginn og hefur vinnslan gengið einkar vel á vertíðinni að sögn Geirs Sigurpáls Hlöðverssonar rekstrarstjóra. Þegar frystingunni lauk var fiskiðjuverið þrifið hátt og lágt og vinnsla á loðnuhrognum undirbúin. Að því loknu fékk starfsfólkið kærkomið vaktafrí.
Á vertíðinni hafa verið fryst 16.500 tonn af loðnu í fiskiðjuverinu. Þar af voru 10.000 tonn hængur og 6.500 tonn hrygna. Af hrygnunni voru um 5.100 tonn Japansloðna.
Börkur NK er á leið til Neskaupstaðar með 2.000 tonn af loðnu sem fara til hrognavinnslu. Aflann fékk skipið í fjórum köstum. Herbert Jónsson skipstjóri segir að byrjað hafi verið að kasta út af Svörtuloftum en síðustu köstin tekin út af Rifi og Ólafsvík. Hann segir jafnframt að víða hafi orðið vart við loðnu, augljóslega sé loðna að koma vestan að og einnig sé loðna austan við Vestmannaeyjar og út af Ingólfshöfða.
Samkvæmt prufum sem teknar hafa verið af aflanum er hlutfall hrygnu 50–57% og er rúmlega 90% hennar búin að losa pokann. Hrognafylling er um 24%.
Börkur er væntanlegur til Neskaupstaðar snemma í fyrramálið og þá hefst vinnsla á hrognunum af fullum krafti.
