Vestmannaey og Bergey með fullfermi

Systurskipin Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu bæði fullfermi í heimahöfn í gærmorgun og héldu til veiða á ný fljótlega eftir að löndun lauk.
Birgir Þór Sverrisson skipstjóri á Vestmannaey segir að lagt hafi verið af stað í brælu en síðan hafi verið hið þokkalegasta veður í túrnum. „Við héldum til veiða í brælu en síðan var hið þokkalegasta veður í túrnum. Við byrjuðum á Pétursey og Vík og síðan var haldið í Meðallandsbugtina. Túrinn var síðan kláraður á Höfðanum. Meirihluti aflans var ýsa,“ segir Birgir Þór.
Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey lætur einnig vel af veiðunum. „Þetta gekk alveg skrugguvel. Við byrjuðum á Pétursey og Vík en þar var heldur rólegt. Síðan var haldið í Meðallandsbugtina og veitt í grennd við loðnubátana. Túrinn var kláraður á Ingólfshöfðanum en þar var mjög góð veiði og á þeim slóðum var töluvert af loðnu á ferðinni. Aflinn var mest ýsa og dálítið af þorski með. Við vorum að veiðum í þokkalegasta veðri en síðan brældi,“ segir Jón.

