Hörkumánuður hjá Fjölni

Deila:

Krókaaflamarksbáturinn Fjölnir, minnsta skipið í flota Síldarvinnslunnar, átti afar góðan febrúarmánuð. Báturinn er gerður út af Vísi í Grindavík og eru tvær áhafnir um borð sem skiptast á hálfsmánaðarlega. Skipstjórar eru Kristinn Arnberg Kristinsson og Júlíus Magnús Sigurðsson.

Í febrúar fór Fjölnir 17 róðra og nam aflinn rúmlega 218 tonnum. Að sögn skipstjóranna var mánuðurinn sérlega góður þegar veður leyfði sjósókn.

Kristinn Arnberg segir að aflabrögðin hafi oft verið frábær. „Þetta gekk afar vel. Bestu túrarnir yfir 20 tonn og nokkrir á bilinu 15 – 17 tonn. Fiskurinn sem fékkst var líka stór og fallegur, meðalvigtin líklega 7 – 9 kíló. Það dró úr veiðinni þegar loðnan kom á miðin en þannig er það ávallt. Þetta er á meðal bestu febrúarmánaða sem ég man eftir og það var hægt að róa meira en oft áður þó að síðasta vika mánaðarins félli að mestu niður vegna veðurs,“ segir Kristinn.

Júlíus Magnús tekur í sama streng og segir mánuðinn vera einn þann besta sem hann man eftir. „Þetta er með bestu febrúarmánuðum. Báturinn er gerður út frá Grindavík en veðrið hefur stundum þau áhrif að róið er frá öðrum höfnum. Í febrúar voru til dæmis farnir fimm róðrar frá Grindavík, einnig fimm frá Þorlákshöfn og sjö frá Sandgerði. Aflabrögðin í mánuðinum voru mjög góð og það má alveg tala um mokfiskirí. Það er alltaf góð veiði áður en loðnan kemur á svæðið og það brást svo sannarlega ekki. Þessi flotti febrúarmánuður bættist við janúar sem var afar góður líka. Við Fjölnismenn getum ekki annað en verið ánægðir með byrjun þessa árs,“ segir Júlíus Magnús.

Deila: