Ísfisktogarar með fullfermi

Ísfisktogararnir í Síldarvinnslusamstæðunni hafa landað góðum afla síðustu daga. Jóhanna Gísladóttir GK landaði fullfermi í Grindavík á sunnudagsmorgun og sama dag lönduðu Vestmannaey VE og Bergey VE fullfermi í Vestmannaeyjum. Gullver landar síðan í Hafnarfirði í dag.
Einar Ólafur Ágústsson skipstjóri á Jóhönnu Gísladóttur segir að aflinn hafi verið mest þorskur. „Við vorum að veiðum á Kópanesgrunni. Byrjað var á grunnslóðinni en þar fékkst heldur lítið. Þá færðum við okkur utar og þar var góður afli. Við vorum einungis tæpa tvo sólarhringa að veiðum þannig þetta gekk virkilega vel,“ segir Einar Ólafur.
Vestmannaey og Bergey lönduðu einnig fullfermi í Eyjum. Ragnar Waage Pálmason skipstjóri á Bergey segir að túrinn hafi gengið vel. „Við vorum að veiðum á Höfðanum, í Breiðamerkurdýpi og enduðum síðan á Pétursey. Aflinn var langmest ýsa. Veður var heldur slæmt til að byrja með en lagaðist síðan,“ segir Ragnar.
Birgir Þór Sverrisson skipstjóri á Vestmannaey segir veiðiferðina hafa gengið vel. „Þetta var um tveir og hálfur sólarhringur þannig að það er ekki hægt að kvarta. Við byrjuðum á Ingólfshöfðanum og tókum síðan eitt hol á Víkinni. Aflinn var mest ýsa og það er búin að vera góð ýsuveiði í febrúarmánuði. Það er alltaf að koma loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala,“ segir Birgir Þór.
Þórhallur Jónsson skipstjóri á Gullver segir að túrinn hafi hafist fyrir austan. „Við byrjuðum á að fá ýsu og þorsk á Papagrunni en síðan var haldið vestureftir. Við vorum mest á Melsekk og þar var góð karfaveiði. Síðan var leitað að ufsa á Eldeyjarbanka og á Reykjanesgrunni með heldur litlum árangri. Aflinn í túrnum var 106 tonn, mest karfi en einnig töluvert af ýsu og þorski,“ segir Þórhallur.
Jóhanna Gísladóttir hélt aftur til veiða síðdegis á sunnudag og Vestmannaey og Bergey fóru á miðnætti á sunnudagskvöld. Gullver heldur til veiða síðdegis í dag.