Metmánuður í útflutningi eldisafurða

Deila:

Útflutningsverðmæti eldisafurða nam rétt rúmlega 10 milljörðum króna í janúar og er það stærsti mánuður frá upphafi, bæði þegar litið er til verðmæta og magns. Miðað við janúar í fyrra nemur aukningin 26% í krónum talið en 29% þegar leiðrétt er fyrir gengisbreytingum, en gengi krónunnar var að jafnaði rúmlega 2% sterkara nú í janúar en fyrir ári. Þetta kemur fram í frétt á vef Radarsins.

Aukninguna má að öllu leyti rekja til laxeldis. Útflutningsverðmæti eldislax nam um 9,6 milljörðum króna í janúar, sem er 33% aukning frá sama mánuði í fyrra á föstu gengi. Útflutningsverðmæti silungs, sem að langstærstum hluta er bleikja, stóð nánast í stað milli ára en samdráttur varð í öðrum tegundaflokkum eldisafurða.

Bent er á að hluti þessa mikla útflutnings í janúar skýrist af rekstrarlegum áskorunum hjá sumum eldisfyrirtækjum sem þurftu að grípa til snemmbúinnar slátrunar. Það undirstriki að þrátt fyrir mikil tækifæri standi greinin frammi fyrir raunverulegum rekstraráskorunum.

Fiskeldi er orðið mikilvæg stoð í efnahagslegu gangverki þjóðarinnar og hefur útflutningsverðmæti aukist jafnt og þétt. Gera má ráð fyrir að hlutur greinarinnar geti enn vaxið og lagt sitt af mörkum til bætts þjóðarhags. Til þess þarf að bæta framleiðni, skýra regluverk og auka fyrirsjáanleika í rekstrarumhverfi hennar, enda liggja þar bæði tækifærin og áskoranirnar.

Deila: