Loðnuhrogn unnin úr afla Barkar

Börkur NK kom til heimahafnar í Neskaupstað á mánudagsmorgun með um 2.000 tonn af hrognaloðnu. Strax var hafist handa við svonefnda kúttun, þar sem loðnan er skorin og hrognunum náð úr henni með sérstökum vélbúnaði. Hrognin fara síðan í hreinsun og pökkun í fiskiðjuverinu en afgangurinn fer til mjöl- og lýsisvinnslu.
Lokið var við að landa úr skipinu í gær en enn er verið að kútta loðnu úr farmi Barkar. Hreinsun, pökkun og frysting loðnuhrognanna hófst í fiskiðjuverinu í gærkvöldi og segir Geir Sigurpáll Hlöðversson rekstrarstjóri versins að sú vinna hafi gengið vel. Um 30 manns starfa á vakt við hrognaframleiðsluna og að sögn hans ríkir jafnan góð stemning meðal starfsmanna meðan á henni stendur. Japanskir fulltrúar kaupenda fylgjast jafnframt náið með framleiðsluferlinu.
Beitir NK kemur til Neskaupstaðar með um 2.300 tonn af hrognaloðnu í hádeginu í dag og verður sá farmur tekinn til kúttunar þegar vinnslu á afla Barkar lýkur. Barði NK er einnig kominn á loðnumiðin á Breiðafirði og mun hann koma með næsta hrognaloðnufarm að landi.
Nauðsynlegt er að stýra veiðum skipanna vel og skipuleggja vinnsluna vandlega þar sem um viðkvæmt og verðmætt hráefni er að ræða.
Tómas Kárason skipstjóri á Beiti segir veiðarnar hafa gengið vel. „Þær gengu vel. Við fengum aflann í fimm köstum og um er að ræða fallega og góða hrognaloðnu. Hrognafyllingin er 26–28% og hlutfall hrygnu í aflanum er yfir 60%. Síðustu fréttir herma að nú sé loðna sem kemur að vestan að blandast þessari hrognaloðnu í Breiðafirðinum. Hrognin í þeirri loðnu eru komin skemur á þroskabrautinni þannig að þetta er áhyggjuefni, en staðreyndin er sú að það er loðna víða,“ segir Tómas.



