Grásleppufrumvarpið samþykkt

Alþingi samþykkti í gær frumvarp meiri hluta atvinnuveganefndar um veiðistjórn grásleppu. Frumvarpið var samþykkt með 34 atkvæðum gegn 20 og einn þingmaður sat hjá.
Fyrir þriðju umræðu var lögð fram breytingartillaga frá meirihluta atvinnuveganefndar þar sem meðal annars var lagt til að lögin taki gildi 1. september 2026. Í nefndaráliti meirihlutans segir að með því haldi núverandi aflamarkskerfi gildi sínu út yfirstandandi fiskveiðiár en veiðistjórn í grásleppu verði færð til fyrra horfs frá og með nýju fiskveiðiári.
Frumvarpið hefur verið umdeilt frá því það var lagt fram og harðar deilur hafa staðið um málið á Alþingi. Um er að ræða þingmannafrumvarp og var fyrsti flutningsmaður þess Lilja Rafney Magnúsdóttir þingmaður Flokks fólksins.
Málsmeðferð frumvarpsins hefur sætt gagnrýni í þinginu. Í umræðum var meðal annars bent á að samkvæmt áliti skrifstofu Alþingis bæri þinginu að kanna lögmæti frumvarpsins, sem þó var ekki gert.
Allmargir þingmenn tóku til máls við atkvæðagreiðsluna í þriðju umræðu. Þar gagnrýndu stjórnarandstæðingar meðal annars meðferð málsins í atvinnuveganefnd harðlega. Meirihluti nefndarinnar lagðist gegn því að fengið yrði álit Lagastofnunar Háskóla Íslands á lögmæti frumvarpsins og kom fram í umræðunum að margir þingmenn undruðust þá afstöðu.


