Hæstiréttur ómerkir dóm í máli skipverja sem fórst

Hæstiréttur hefur ómerkt dóm Landsréttar í skaðabótamáli foreldra ungs skipverja sem féll fyrir borð og drukknaði. Landsréttur þarf því að taka málið aftur fyrir. Þetta kemur fram í frétt á vef RÚV.
Málið snýst um skaðabótakröfur foreldra Axels Jósefssonar Zarioh á hendur útgerðarfélaginu Brim hf. Axel var á nítjánda aldursári þegar hann féll frá borði í maí 2020 um borð í skipinu Erlingi KE 140 sem var á leið til hafnar í Vopnafirði. Umfangsmikil leit fór fram á sínum tíma en líkamsleifar hans fundust í apríl árið eftir.
Foreldrarnir telja að útgerðin hafi brugðist bæði eftirlits- og öryggisskyldu sinni. Í því sambandi hafa þau meðal annars bent á að öryggismyndavélar um borð hafi ekki verið virkar, að skipverjar hafi áttað sig seint á hvarfi Axels og að tilkynning til lögreglu hafi dregist. Þá hafi hann ekki setið öryggisfræðslunámskeið.
Héraðsdómur sýknaði útgerðarfélagið og tryggingafyrirtæki þess af skaðabótakröfum foreldranna. Foreldrarnir áfrýjuðu dómnum til Landsréttar, sem hafnaði beiðni þeirra um viðbótarsönnunarfærslu og munnlegan málflutning og staðfesti dóm héraðsdóms.
Foreldrarnir töldu málsmeðferðina fyrir Landsrétti ábótavant og fengu áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar. Að því er fram kemur í fréttinni taldi Hæstiréttur að Landsrétti hefði borið að fallast á beiðni þeirra um munnlegan málflutning. Vegna annmarka á málsmeðferðinni var því talið óhjákvæmilegt að ómerkja dóm Landsréttar og taka málið þar fyrir á ný.

