Methiti mældist í sjónum við Ísland

Deila:

Hitastig sjávar við Ísland mældist víða hærra en áður í árlegum vetrarleiðangri Hafrannsóknastofnunar sem lauk 17. febrúar eftir 15 daga á rannsóknaskipinu Þórunni Þórðardóttur. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar.

Í leiðangrinum voru gerðar mælingar á tíu sniðum út frá landinu og alls á um 100 stöðvum. Hitastig og selta voru mæld í mismunandi dýpi og sýnum safnað til greininga á meðal annars næringarefnum, súrefni og sýrustigi sjávar.

Niðurstöður sýna að hitastig í efstu 200 metrum sjávar var almennt hærra en langtímameðaltal. Á mörgum stöðvum mældist hitinn hærri en áður hefur sést í vetrarleiðangri frá því mælingar hófust árið 1970.

Í Atlantssjó suður og vestur af landinu mældist methiti, 8,55 gráður á Selvogsbanki 5, og norðan Íslands náði hitastigið 5,0 gráðum á Siglunessniði. Á sama tíma mældist mjög lág selta og lágt hitastig á ytri stöðvum í Grænlandssundi þar sem pólsjór er ríkjandi.

Samkvæmt Hafrannsóknastofnun benda niðurstöðurnar til þess að Atlantssjórinn suður af landinu sé að styrkjast aftur eftir tímabil kaldari sjávar sem náði lágmarki árið 2017. Aukin varmaflutningur til norðurs í hafinu gæti haft áhrif á veðurfar á Íslandi og víðar, en frekari rannsókna er þörf til að meta þróunina.

Deila: