Opið fyrir umsóknir um strandveiðileyfi

Fiskistofa hefur tilkynnt að opnað verður fyrir umsóknir um strandveiðileyfi sunnudaginn 1. mars 2026 og umsóknarfrestur sé til og með 14. apríl 2026.
LS vill benda strandveiðisjómönnum á að kynna sér vel nýjungar í umsóknarferlinu og skipuleggja sig vel. Ekki er hægt að sækja um eftir að umsóknarfrestur rennur út né breyta umsóknum, að því er fram kemur á vef Fiskistofu.

