Stefnir í stærstu strand­veiði­vertíð frá upp­hafi

Deila:

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra stefnir að því að setja um 14.700 tonn af þorski í strandveiðipottinn á komandi vertíð. Inn í þeirri áætlun eru aflaheimildir sem búist er við að fáist í gegn um skiptimarkað.

Þetta herma heimildir Auðlindarinnar innan úr Flokki fólksins. Ef þetta gengur eftir verður um að ræða langstærstu strandveiðivertíð frá upphafi strandveiða. Aflinn hefur aldrei farið yfir 12.000 tonn af þorski.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um strandveiðileyfi en ekki verður hægt að sækja um leyfi eftir að vertíðin er hafin. Menn þurfa því að hafa hraðar hendur.

Deila: