Vertíðarfiskurinn lætur eftir sér bíða

Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu bæði fullfermi í heimahöfn í gær eftir um þriggja sólarhringa veiðiferðir. Uppistaðan í afla beggja skipa var ýsa. Þetta kemur fram á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Birgir Þór Sverrisson skipstjóri á Vestmannaey segir veiðina hafa gengið þokkalega þrátt fyrir hálfgert skítaveður allan tímann. „Við byrjuðum á Pétursey og vorum síðan einnig á Víkinni, Ingólfshöfða og í Meðallandsbugtinni. Þetta er að ýmsu leyti skrítin vertíð. Venjulega kemur vertíðarþorskurinn á miðin við Eyjar á eftir loðnunni en nú lætur hann bíða eftir sér. Það veiðist góður þorskur annað veifið en það hefur ekki verið samfelld veiði eins og gjarnan er á þessum árstíma,“ segir Birgir Þór.
Ragnar Waage Pálmason skipstjóri á Bergey segir veiðina hafa gengið ágætlega en um veltingstúr hafi verið að ræða. „Það veiddist ýsa á daginn en á nóttunni fengust aðrar tegundir. Við byrjuðum á að fara á Pétursey en síðan var haldið á Víkina, Höfðann og í Breiðamerkurdýpið og loks endað á Síðugrunni. Menn bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu á miðunum en hún hlýtur að koma,“ segir Ragnar Waage.