Samfelld löndun á hrognaloðnu í Neskaupstað

Deila:

Samfelld löndun á hrognaloðnu hefur verið í Neskaupstað yfir helgina og hefur verið nóg að gera í vinnslunni. Þetta kemur fram á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Börkur NK landaði 1.600 tonnum, Barði NK 1.750 tonnum og grænlensku skipin Polar Amaroq 1.600 tonnum og Polar Ammassak 1.400 tonnum. Gengið hefur vel að kútta loðnuna og hreinsun og frysting hrognanna í fiskiðjuverinu hefur einnig gengið vel.

Börkur og Barði veiddu loðnuna út af Reykjanesi en grænlensku skipin voru að veiðum á Breiðafirði. Þroski hrognanna í loðnunni sem veiddist við Reykjanesið var um 100% en um 40% í loðnunni sem veiddist á Breiðafirði.

„Við byrjuðum á að taka eitt prufukast á miðvikudagskvöld til að kanna hvernig loðnan væri sem þarna var á ferðinni. Í prufukastinu fengum við um 100 tonn og í ljós kom að þroski hrognanna var 100% og allar hrygnur voru búnar að losa pokann. Við fengum síðan megnið af aflanum í þremur köstum á fimmtudag,“ segir Þorkell Pétursson skipstjóri á Barða á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Börkur, Polar Amaroq og Barði hafa þegar haldið til veiða á ný en verið er að landa úr Polar Ammassak. Bræla hefur verið á loðnumiðunum alla helgina og engin veiði. Vænta má að veiðar geti hafist á ný í dag.

Deila: