Sigurborg með 84 tonn í Grundarfjörð

Sigurborg SH 12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun. Heildarmagn afla voru tæp 84 tonn, þar af um 25 tonn af ýsu, um 19 tonn af þorski, um 16 tonn af steinbít og um 11 tonn af skarkola. Frá þessu er sagt á heimasíðu Fisk Seafood.
Sigurborg var meðal annars á veiðum vestan við Garðskaga og á Nesdýpi.

