Veiðarfæri í skrúfu töfðu Drangeyju

Drangey SK 2 kom til löndunar á Sauðárkrókshöfn í morgun með um 100 tonna afla. Þar af voru um 70 tonn af þorski. Skipið var meðal annars við veiðar á Víkurálsbotni og á Halanum.
Veiðiferðin gekk þó ekki hnökralaust fyrir sig. Í upphafi túrs var slæmt veður og lítið um afla. Þá lenti áhöfnin einnig í því að veiðarfæri fóru í skrúfu skipsins. Þetta kemur fram á heimasíðu Fisk Seafood.
„Það var skítabræla í byrjun túrs og lítið um að vera. Svo lentum við í því að fá veiðarfærin í skrúfuna og vorum dregnir inn á Patreksfjörð. Þar voru tveir kafarar í því að skera úr veiðarfærin og það gekk nokkuð fljótt. Vanir menn á ferð. En þetta kostaði okkur rúman sólarhring frá veiðum,“ segir Halldór Þorsteinn Gestsson skipstjóri.
Eftir að búið var að losa veiðarfærin komst skipið aftur til veiða. Þá hafði veður versnað á ný og var haldið norður á Hala þar sem þorskskammturinn var kláraður. Túrnum lauk síðan á Skagagrunni þar sem lítið var um afla.
Frétt um atvikið var einnig birt á vef Landhelgisgæslunnar. Myndin er af vef gæslunnar.
