Togarar landa á Seyðisfirði og í Þorlákshöfn

Ísfisktogarinn Gullver NS landaði á Seyðisfirði í gær og Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE eru að landa í Þorlákshöfn í dag eftir veiðiferðir þar sem veður setti töluvert mark sitt á sjósóknina. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Gullver var með 52 tonna afla, mest karfa en einnig ýsu og þorsk. Þórhallur Jónsson skipstjóri segir túrinn hafa verið nokkuð þreytandi vegna veðurs. „Við byrjuðum á að veiða karfa á Melsekk í sæmilegu veðri. Síðan var haldið austur eftir og það var heldur lítið að hafa. Við enduðum á Glettinganesflakinu og þá var komið snælduvitlaust veður þannig að það var ekkert annað að gera en að fara í land,“ segir Þórhallur. Hann bætir við að haldið verði aftur til veiða fljótlega eftir löndun, líklega á miðum úti fyrir suðausturlandinu, þó veðurútlit sé ekki sérlega gott.
Vestmannaey VE og Bergey VE voru báðar að veiðum á Planinu vestan við Eyjar. Afli beggja skipa var mest þorskur, rauðspretta og ufsi. Birgir Þór Sverrisson skipstjóri á Vestmannaey segir veðrið hafa verið erfitt. „Það var drulluveður og haugasjór en það gekk hins vegar ágætlega að veiða.“
Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey segir túrinn hafa verið stuttan en vel heppnaðan. „Þetta var stuttur túr eða einungis tveir sólarhringar höfn í höfn og aflinn var vel blandaður. Ég held menn hljóti að vera ágætlega sáttir við þessa veiðiferð,“ segir Jón.
Bæði Vestmannaey og Bergey halda á ný til veiða í kvöld.

