Wisefish færir út kvíarnar í Kanada

Hugbúnaðarfyrirtækið Wisefish hefur hafið samstarf við kanadíska vinnslufyrirtækið Quinlan Brothers, að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Í tilkynningunni segir að samstarfið marki áframhaldandi vöxt Wisefish í Kanada og endurspegli aukna eftirspurn í kanadískum sjávarútvegi eftir sérhæfðri tækni og hugbúnaði til að nútímavæða rekstur, bæta rekjanleika og takast á við flóknari aðfangakeðjur.
Með innleiðingu Wisefish fær Quinlan Brothers aukna yfirsýn yfir starfsemi sína, allt frá móttöku hráefnis og vinnslu til birgðastýringar og dreifingar. Lausnin á að bæta skýrslugerð, auka nýtingu hráefnis og styðja við hraðari ákvarðanatöku.
„Innleiðing Wisefish er stórt skref í átt að umbreytingu í rekstri okkar,“ segir Candace Seymour fjármálastjóri Quinlan Brothers í tilkynningunni. Hún segir aðgang að áreiðanlegum gögnum í rauntíma skipta lykilmáli fyrir fyrirtækið.
Siggeir Örn Steinþórsson framkvæmdastjóri viðskipta- og upplifunarsviðs hjá Wisefish segir samstarfið endurspegla aukna vitund um mikilvægi stafrænna lausna í sjávarútvegi.
Quinlan Brothers er með höfuðstöðvar í Newfoundland og Labrador og flytur sjávarafurðir til meira en 20 landa. Vinnslustöð fyrirtækisins er meðal þeirra stærstu í heimi í vinnslu snjókrabba, að því er fram kemur í tilkynningunni.
