Brælutúrar hjá Páli Jónssyni og Sighvati

Línuskipin Páll Jónsson GK og Sighvatur GK hafa bæði landað í vikunni eftir erfiða túra þar sem veður setti mark sitt á veiðarnar. Páll Jónsson landaði á mánudag en Sighvatur í morgun. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Jónas Ingi Sigurðsson skipstjóri á Páli Jónssyni segir að um sannkallaðan brælutúr hafi verið að ræða. „Við byrjuðum í kaldaskít en síðan skall á skítabræla. Um var að ræða fimm lagnir í túrnum og árangurinn var ekkert sérstakur. Við vorum á Faxaflóanum og þar er mikil loðna þannig að þorskurinn tekur ekki beitu í miklum mæli. Þetta allt saman þýddi heldur slæmar aðstæður til línuveiða.“
Hann segir að byrjað hafi verið að leggja á Eldeyjarbanka og þaðan farið í Jökuldýpið. Þegar veðrið var sem verst hafi skipið leitað skjóls í Garðsjónum og lagt þar hálfa lögn áður en túrnum lauk í Jökuldýpinu. Aflinn var 74 tonn, mest af þorski en einnig ýsa og langa.
Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson skipstjóri á Sighvati segir að veðrið hafi einnig sett svip sinn á veiðarnar. „Þetta var bölvaður brælutúr. Suðvestanáttin varð eins slæm og hún getur orðið. Það var einungis fjögur og hálf lögn í túrnum og aflinn var samtals 65 tonn.“
Hann segir að byrjað hafi verið í Jökuldýpinu, þaðan farið inn á Breiðafjörð og síðan í Kolluál. Þá hafi þurft að fara í land til viðgerða áður en síðasta lögnin var lögð á Búðagrunni. „Lokalögnin var á Búðagrunni og hún var mjög góð. Þar fengum við um 20 tonn,“ segir Aðalsteinn Rúnar og bætir við að mest af aflanum í túrnum hafi verið ýsa.

