Dökk skýrsla um stjórnunarhætti Hafró

Skýrsla sem Deloitte vann fyrir atvinnuvegaráðuneytið um stöðu Hafrannsóknastofnunar dregur upp gagnrýna mynd af stjórnun stofnunarinnar og starfsháttum hennar. Þar kemur fram að stofnunin hafi um árabil glímt við rekstrar- og stjórnunarvanda, óskýra stefnu og veikburða vinnustaðarmenningu.
Í skýrslunni segir að stjórnunarlegar áskoranir hafi verið viðvarandi og hafi meðal annars birst í samskiptavanda innan stofnunarinnar, litlu trausti til stjórnenda og veikri samhæfingu í starfseminni. Þá hafi stofnunina skort skýra stefnumörkun og mælikvarða á árangur ráðgjafar til stjórnvalda.
Deloitte bendir einnig á að of lítil áhersla hafi verið lögð á stjórnunarfærni í starfi forstjóra. Að mati skýrsluhöfunda hefur sú áhersla sem lögð hefur verið á sérfræðimenntun fremur en stjórnunarreynslu haft veruleg áhrif á þann stjórnunarvanda sem stofnunin hefur glímt við.
Í skýrslunni segir að starf forstjóra Hafrannsóknastofnunar sé sérstaklega krefjandi vegna viðvarandi stjórnunarvanda, veikrar vinnustaðarmenningar og skorts á samhæfingu í starfseminni. Þá bendi margt til þess að skipulag stofnunarinnar hafi aukið á vandann.
Meðal annars er bent á að skortur á millistjórnendum sé óvenjulegur og óeðlilegur. Samkvæmt skipuriti geti stjórnendur haft allt að 50 starfsmenn í beinni línu undir sér, sem torveldi árangursríka stjórnun. Þá sé einnig til staðar svokallað „skuggaskipurit“, þar sem óformleg stjórnunarlög hafi myndast til að bregðast við skipulagsvandanum.
Skýrslan gagnrýnir einnig aðhald ráðuneytisins gagnvart stofnuninni. Þar segir að stjórnsýslutæki sem fyrir hendi séu hafi verið vannýtt og að skort hafi á virkri yfirstjórn ráðuneytisins gagnvart stofnuninni.
Lagt er til að lögbundið hlutverk Hafrannsóknastofnunar verði einfaldað og skýrt betur, með aukinni áherslu á vísindadrifna ráðgjöf og grunnrannsóknir. Þá er einnig lagt til að skýrari aðgreining verði á milli rannsókna og ráðgjafar innan stofnunarinnar.
Einnig er lagt til að breyta hæfnisskilyrðum forstjóra þannig að meiri áhersla verði lögð á stjórnunarfærni samhliða sérfræðiþekkingu. Þá er lagt til að skerpa á stjórnskipulagi stofnunarinnar, fækka beinum undirmönnum stjórnenda og tryggja að lykilþættir eins og skiparekstur hafi skýran sess í skipulagi hennar.
Skýrslan bendir jafnframt á að bæta þurfi mannauðsstjórnun og vinnustaðarmenningu innan stofnunarinnar. Samkvæmt niðurstöðum hennar mælist stofnunin undir meðaltali í öllum lykilþáttum vinnustaðar, meðal annars þegar kemur að stjórnun, upplýsingaflæði og trausti til stjórnenda.
„Þessi skýrsla mun nýtast vel í þeirri vinnu sem nú þegar er hafin í ráðuneytinu,“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í tilkynningu frá ráðuneytinu. „Frumvarp mitt um Hafrannsóknastofnun er nú í meðferð Alþingis, okkar takmark er að Hafrannsóknastofnun verði eins vel í stakk búin og kostur er til að sinna sínu vísindalega og samfélagslega hlutverki til framtíðar.“

