Miklar loðnulandanir í Neskaupstað

Börkur NK kom til Neskaupstaðar um hádegisbil í gær með 1.900 tonn af hrognaloðnu og hófst löndun strax. Í kjölfarið komu grænlenska skipið Polar Amaroq með 2.000 tonn og Beitir NK með 2.200 tonn og Polar Ammassak er á leið til hafnar með um 2.100 tonn. Hrognavinnsla gengur vel í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Þetta kemur fram á vef fyrirtækisins.
Skipstjórarnir Hjörvar Hjálmarsson á Berki og Tómas Kárason á Beiti segja vertíðina hafa verið snarpa og góða, með hagstæðu veðri og góðri veiði. Veitt var suður af Malarrifi í síðasta túrnum og hrygnuhlutfall í loðnunni hátt, sem bendir til áframhaldandi kraftmikillar hrognavinnslu.
Síldarvinnsluskipin Barði, Beitir og Börkur hafa nú lokið veiðum á loðnuvertíðinni.
