Nýir hlerar um borð í Þinganes

Deila:

Nýlega tók Skinney-Þinganes í notkun nýja Týpu 28 toghlera frá Thyborøn Trawldoor fyrir togarann Þinganes SF-25. Frá þessu segir í tilkynningu frá félaginu.

Þar segir að um sé að ræða botnhlera með glussatjakki sem geri kleift að minnka eða stækka hlerana eftir því sem við eigi þegar þeir hanga aftan á skipinu. Þessi búnaður sé af sömu gerð og notaður sé í fullfjarstýrðum hlerum og teljist þetta mikilvægt skref í átt að aukinni sjálfvirkni í stjórnun botnhlera hér á landi.

Með tilkomu breytanlegra og að hluta fjarstýrðra botnhlera skapist forsendur til nákvæmari stillinga og betri stjórnunar við breytilegar aðstæður á botni. Uppsetningin um borð í Þinganes SF-25 marki þannig upphaf innleiðingar á nýrri tækni í íslenskum botnfiskveiðum.

Hampiðjan er umboðsaðili Thyborøn Trawldoor á Íslandi og hefur haft umsjón með afhendingu og þjónustu við búnaðinn.

Deila: