Segir upp tuttugu starfsmönnum

Deila:

Fiskvinnslan Erik The Red Seafood í Keflavík hefur sagt upp um tuttugu starfsmönnum, eða um fimmtungi starfsfólks, vegna minna framboðs af hráefni og hækkandi fiskverðs. Þetta segir Ketill Helgason eigandi fyrirtækisins í viðtali við Fiskifréttir.

Ketill segir að minna sé af hráefni á mörkuðum á sama tíma og verðið hafi hækkað verulega. „Það er ekki grundvöllur fyrir því að halda áfram með sumt af því sem við vorum að gera,“ segir hann. Hann bendir jafnframt á að útflutningur á óunnum fiski hafi aukist á undanförnum árum og telur að það hafi áhrif á starfsemi fiskvinnslu hér á landi.

Í viðtalinu er einnig fjallað um áhyggjur af ímynd íslensks fisks vegna útflutnings á óunnum bolfiski sem er unninn erlendis en seldur sem íslenskur fiskur. Ketill segir að vinna þurfi málið vandlega ef gripið verði til aðgerða, til dæmis með vinnsluskyldu.

Þetta kemur fram í frétt á vef Fiskifrétta.

Deila: