30 milljarða fjárfesting á þremur árum

„Á þessu þriggja ára tímabili frá fyrstu skóflustungunni í Viðlagafjöru erum við búnir að framkvæma fyrir um það bil 30 milljarða króna. Sú áætlun sem við lögðum af stað með hefur staðist, bæði hvað varðar tíma, fjármagn og lífmassa.“ Þetta segir Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður fiskeldisfyrirtækisins Laxey í Vestmannaeyjum.
Þrjú ár voru í lok febrúar (17.febrúar) liðin frá fyrstu skóflustungunni og mikið vatn hefur runnið til sjávar. „Við erum búnir að byggja upp eldsrými upp á 40 þúsund rúmmetra. Framleiðslan á þessu ári verður fimm þúsund tonn af laxi en við erum þegar búin að framleiða tæplega eitt þúsund tonn. Á næsta ári getum við framleitt 11 þúsund tonn,“ segir Lárus og bætir við að árið eftir muni fyrirtækið geta framleitt 17 þúsund tonn.
Hann áréttar að við upphaf framkvæmda hefði verið stefnt að því að fyrsta slátrun yrði í lok nóvember 2025. Það hafi gengið eftir.
Fullbyggð getur Laxey framleitt 40 þúsund tonn af laxi. Ef fer sem horfir verður þeirri framleiðslu náð árið 2031. Lárus segir að verkefnið hafi gengið afar vel enda stutt af traustum fjárfestum. Um sé að ræða dreifða og trausta eignaraðild. Auk þess hafi Vestmannaeyjabær og samfélagið í heild lagt verkefninu lið. „Við höfum fundið fyrir gífurlegum stuðningi hér í samfélaginu við þetta verkefni,“ segir Lárus og bætir við að það hafi skipt sköpum við uppbygginguna.
Gífurleg umsvif
Hátt í 200 manns vinna nú hjá Laxey, ýmist með beinum hætti við eldið sjálft eða framkvæmdir, eða sem verktakar á framkvæmdasvæðinu. Aðspurður segir Lárus að hann geri ráð fyrir að fullbyggt hafi eldið um 150 manns í vinnu. „Núna erum við annars vegar að reka verktakafyrirtæki sem er að framkvæma þau verk sem þarf að inna af hendi. Hins vegar erum við að byggja upp teymið sem vinnur við að ala fiskinn upp í sláturstærð og sinnir vinnslu og pökkun,“ segir Lárus en fiskinum er slátrað þegar hann nær fimm kílóum.
Það er því í mörg horn að líta hjá fyrirtækinu um þessar mundir. „Þetta eru ansi mikil umsvif sem hafa staðið yfir núna óslitið frá árslokum 2023 og munu halda áfram að setja mark sitt á Vestmannaeyjar,“ segir Lárus. Hann segir að áhrifin séu hvoru tveggja almenn og efnahagsleg. Honum er þakklæti ofarlega í huga. „Þetta hefði aldrei gengið upp nema vegna þessa mikla stuðnings sem við höfum notið hér í samfélaginu.“

