Stutt í að fyrsta áfanga ljúki

„Við eigum eftir að byggja eina kerjalínu til að klára fasa eitt í okkar uppbyggingu.“ segir Stefán Ágústsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá landeldisfyrirtækinu First Water. Um 80 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu í dag enda starfrækir fyrirtækið seiðaeldisstöð, fulleldisstöð og vinnslu, auk þess að standa í umfangsmiklum framkvæmdum.
Uppbygging First Water í Þorlákshöfn gerir ráð fyrir 60 þúsund tonna eldi á landi, þegar lokið hefur verið við alla áfanga. Stefán segir að tímalínan hafi eitthvað færst til en segir að þeirri stærð verði náð einhvern tímann upp úr árinu 2030. Um 3.000 tonnum af slægðum laxi (HOG) verður slátrað á þessu ári og Stefán gerir ráð fyrir um 4.000 tonnum á því næsta. „Við erum að slátra fimm kílóa fiski sem fer nánast allur á erlendan markað.“
Eins og áður segir eru framkvæmdir í fullum gangi. „Við erum búnir með jarðvinnuna fyrir þessa síðustu kerjalínu í fasa eitt. Orkuinnviðirnir eru klárir og allt til reiðu. Við erum að fara að steypa þetta upp,“ segir hann og bætir við að starfsmenn fyrirtækisins séu önnum kafnir. „Við erum alltaf að berjast við tímann að einhverju leyti. Framvinda verkefnisins er hins vegar innan eðlilegs tímaramma. Framkvæmdum miðar ágætlega.“
Samkeppni um starfsfólk er fyrirséð
Þegar í fiskeldi Sóknarfæri ræddi við Eggert Þór Kristófersson forstjóra fyrir um tveimur árum kom fram í máli hans að stækkun fyrirtækisins réðist meðal annars af því hvernig gengi að fá sérhæft starfsfólk til starfa. Gífurleg uppbygging væri fyrirhuguð á svæðinu og erfitt gæti reynst að fá fólk. Stefán segir nú, tveimur árum síðar, að þetta verði áskorun þegar horft sé fram á veginn. Samkeppnin um fólk muni aukast enda séu mörg fyrirtæki í fiskeldi í uppbyggingu á svæðinu.
Hann hvetur stjórnvöld til að bregðast við þessum aðstæðum. „Við myndum vilja sjá styrkingu þegar kemur að námi í fiskeldisfræði og að fiskeldið komi meira inn í háskólanám í sjávarútvegsfræðum,“ segir hann. Stefán segir fyrir liggja að fiskeldisfyrirtækin þurfi á sérmenntuðu starfsfólki að halda úr ýmsum greinum.
Hann nefnir í því samhengi rafvirkja, smiði, vélstjóra, verkfræðinga, fólk með menntun í gæðastjórnun, dýralækna og svo auðvitað menntað fólk sem skilur fiskeldi. Þrátt fyrir að rafrænt eftirlit verði mikið þurfi fyrirtæki eins og First Water á fólki að halda sem getur lesið í aðstæður og þarfir fisksins ef svo færi að eitthvað brygði út af. „Til þrautavara þarftu að hafa innanborðs mannskap sem getur horft ofan í ker og áttað sig á ef hegðun fisksins er óeðlileg. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hæft fólk“ segir hann og bætir við að það taki tíma að þjálfa fólk.
Eins og fyrr segir starfa um 80 manns hjá fyrirtækinu um þessar mundir. Stefán segir að um ríflega helmingur þess starfi í eldisstöðvunum og vinnslunni en allmargir á tæknisviði og fáist við framkvæmdir, viðhald, hönnun og önnur slík störf.


