Fullfermi hjá systurskipunum

Deila:

Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu bæði fullfermi í Grindavík á föstudaginn eftir að hafa verið innan við þrjá sólarhringa að veiðum. Aflinn var blandaður en mest var af þorski, ufsa, skarkola og ýsu.

Að því er fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar ræddi heimasíðan við skipstjórana um veiðarnar. Egill Guðni Guðnason skipstjóri á Vestmannaey segir túrinn hafa gengið vel. „Við vorum á Selvogsbankanum allan túrinn. Það var fínt veður framan af en síðan versnaði það heldur betur. Í reyndinni var vitleust veður á fimmtudaginn og aðfaranótt föstudagsins. Það gekk vel að veiða og ég reikna með að það verði haldið beint á Selvogsbankann aftur,“ segir Egill Guðni.

Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey segir einnig hafa gengið vel að veiða. „Við vorum að veiðum á Planinu vestan við Eyjar og síðan á Selvogsbankanum og ánægjulegt var hve aflinn var blandaður. Túrinn var stuttur og ég reikna með að haldið verði á sömu slóðir á ný að löndun lokinni,“ segir Jón.

Deila: