Þriggja milljarða uppbygging að baki

„Við vorum að ljúka öðrum áfanga okkar í uppbyggingu á seiðastöðinni á Nauteyri. Þær framkvæmdir gera okkur kleift að framleiða seiði að 200 grömmum upp í leyfið okkar.“ Þetta segir Gauti Geirsson, framkvæmdastjóri laxeldisfyrirtækisins Háafells, sem er í eigu HG (Hraðfrystihúsið-Gunnvör). Fyrirtækið starfar í Ísafjarðardjúpi og heldur úti starfsemi í þremur sveitarfélögum.
Háafell hefur leyfi fyrir 6.800 tonna lífmassa á fjórum svæðum í djúpinu en framkvæmdirnar á Nauteyri miða að því að fyrirtækið geti framleitt seiði til að fullnýta það leyfi. „Stöðin er í grunninn frá árinu 1984 en við erum búnir að endurnýja hana alla. Þar er nýtt hús, tankar, ný hitaveita og varaaflsstöð. Fyrirtækið er búið að fjárfesta þarna fyrir meira en þrjá milljarða króna.“
Hjá Háafelli starfa um 30 manns. Fyrirtækið selur fisk sinn víða um heim. Mest er selt til Evrópu en fyrirtækið hefur selt frosinn fisk til Asíu. Eitthvað hefur einnig farið til Bandaríkjanna.
Mikil reynsla hefur orðið til
Fyrirtækið hefur lengi haft starfsemi í Ísafjarðardjúpi. Þar starfrækti HG þorskeldi um árabil og eldi á regnbogasilungi auk þess sem HG veiddi rækju í djúpinu. Gauti segir að þessi reynsla hafi verið tekin saman og nýtt til umsóknar á leyfi til framleiðslu á laxi. Þar hafi verið virkilega vandað til verka. „Við gáfum okkur tíu ár til að fara í gegnum umhverfismat og sækja um leyfið. Það var búið að gaumgæfa vel hvert skref. Við settum fyrsta laxinn út 2022 og í sumar verður fimmta kynslóð laxa sett í sjókvíar.“
Ýmsar þungar áskoranir hafa komið upp í sjókvíaeldi á undanförnum misserum. Lítið hefur farið fyrir Háafelli í þeim fréttaflutningi. Gauti staðfestir að vel hafi gengið hjá fyrirtækinu að undanförnu. „Það hefur gengið vel en við erum auðvitað ekki ónæm fyrir áföllum. Við höfum hins vegar lagt allt kapp á að minnka líkurnar á áföllum, sett velferð fisksins í forgrunn og stöðugt fylgst með og nýtt okkur nýjar tæknilausnir, til dæmis hvað sjúkdóma- og lúsavarnir varðar,“ útskýrir Gauti.
Engin lyf í hafið
Ekki ber á öðru en að vandvirknin hafi skilað góðum árangri. Háafell var með um 1,2 milljónir fiska í sjónum síðastliðið haust. Fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins að Háafell hafi notast við laser, hrognkelsi, lúsapils og inndælingu ferskvatns í kvíarnar til að verja fiskinn fyrir lús. Þetta samspil fyrirbyggjandi aðgerða virðist hafa skilað tilætluðum árangri því tvö ár í röð hefur fyrirtækið ekki þurft að meðhöndla fiskinn með lyfjum eða brunnbáti. Þetta á þátt í því að fyrirtækið er að innleiða Whole Foods-vottunina en þar eru gerðar kröfur um að lyf séu ekki notuð í eldisferlinu.
„Velferð fisksins er víðfeðm og flókin mynd sem miðar öll að því að halda utanaðkomandi áhættuþáttum í lágmarki. Við erum mjög stolt af því að uppfylla skilyrði Whole Foods,“ segir Gauti.



