Vill afnema bætur og efla strandveiðar

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða þar sem lagt er til að línuívilnun og svonefndar skel- og rækjubætur falli niður.
Samkvæmt frumvarpinu verða þessar sértæku ívilnanir felldar niður frá og með fiskveiðiárinu 2026/2027. Í greinargerð segir að skel- og rækjubætur hafi upphaflega verið settar til að bregðast við samdrætti í skel- og rækjuveiðum, en að þær hafi í reynd verið við lýði í ríflega þrjá áratugi. Þá segir einnig að breytingar í tækni og framkvæmd veiða hafi dregið úr vægi þeirra markmiða sem línuívilnun átti upphaflega að styðja.
Jafnframt er lagt til að ráðherra verði heimilt að ráðstafa auknu aflamagni til strandveiða á fiskveiðiárinu 2025/2026, allt að 2.700 tonnum af óslægðum þorski. Það aflamagn á síðan að jafna gagnvart því aflamagni sem dregið verður frá heildaraflamarki á næstu fiskveiðiárum og skal þeirri jöfnun lokið eigi síðar en á fiskveiðiárinu 2029/2030.
Í greinargerð frumvarpsins segir að markmiðið með breytingunum sé að einfalda svonefnt 5,3% kerfi fiskveiðistjórnunar, auka gagnsæi og tryggja skýrari ráðstöfun aflaheimilda innan kerfisins.