Mikill áhugi samhliða stórauknu fiskeldi 

Deila:

Fisktækniskólinn er einkarekinn skóli á framhaldsskólastigi. Skólinn býður upp á fjölbreytt nám í haftengdum greinum s.s. sjávarútvegi og fiskeldi. Um er að ræða hagnýtt tveggja ára grunnnám sem byggt er upp sem önnur hver önn í skóla og hin í vinnustaðanámi. Í vinnustaðanáminu er leitast við að bjóða nemendum upp á val um vinnustað með hliðsjón af áhugasviði hvers eins og t.d. sjómennsku, fiskvinnslu eða fiskeldi.

Klemenz Sæmundsson er skólameistari Fisktækniskólans en í skólanum leggja á bilinu 130 til 150 nemendur stund á nám á hverju ári. Auk þessa stendur skólinn fyrir fjölmörgum námskeiðum í fyrirtækjaþjónustu fyrir aðila sem tengjast sjávarútvegi.

Skólinn, sem hefur verið starfræktur í 15 ár, heldur úti sjö stöðugildum auk þess sem nokkur fjöldi fólks kennir við skólann í verktöku.

Stefna aftur til Grindavíkur

Fisktækniskólinn er sem stendur til húsa í Sandgerði en hann þurfti frá heimabæ sínum, Grindavík, að hverfa eins og aðrir þegar bærinn var rýmdur haustið 2024 vegna jarðhræringa. Hann hafði tímabundið aðsetur hjá Sjávarklasanum en er nú sestur að í Sandgerði – í bili. Klemenz bendir í samtali við Sóknarfæri á að stærstur hluti námsins sé kenndur í fjarnámi. Það eigi meðal annars við um námsleiðirnar í fiskeldistækni og gæðastjórnun. Breytt staðsetning hafi því ekki með þeim hætti áhrif á framgang námsins.

„Við bindum hins vegar vonir við að geta flutt aftur til Grindavíkur þegar aðstæður leyfa, ef til vill næsta haust,“ segir hann. Skólinn sé grindvískur. Það má til sanns vegar færa. Stærsti einstaki eigandi Fisktækniskólans er Grindavíkurbær en aðrir eigendur eru Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, sjávarútvegsfyrirtæki í Grindavík, ásamt Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og Fjölbrautarskóla Suðurnesja.

Deila: