Samherji kynnti störf og sjávarafurðir á Starfamessu

Samherji kynnti starfsemi sína á Starfamessu sem haldin var í Háskólanum á Akureyri fimmtudaginn 12. mars. Þetta kemur fram á vef Samherja.
Á messunni var nemendum í 9. og 10. bekk grunnskóla á Eyjafjarðarsvæðinu boðið að kynna sér atvinnulíf og framtíðartækifæri, en um þrjátíu fyrirtæki og stofnanir tóku þátt. Þetta var í sjöunda sinn sem viðburðurinn er haldinn og hefur Samherji verið þátttakandi frá upphafi.
Á bás Samherja var meðal annars lögð áhersla á að kynna vöruna Besta bitann, þorskhnakka sem settir voru á innanlandsmarkað á síðasta ári. Theódór Sölvi Haraldsson matreiðslumaður sá um að matreiða réttinn og myndaðist biðröð nemenda sem vildu smakka.
„Heima hjá mér er stundum fiskur í matinn og mér finnst hann oftast fínn. Mér fannst þessi fiskréttur geggjaður,“ segir einn gestanna.
Einnig var drykkurinn sykurlaus Collab frá Ölgerðinni kynntur, en hann inniheldur meðal annars kollagen úr sjávarfangi. Róbóti afhenti gestum drykkinn og vakti það athygli.
Starfsfólk Samherja kynnti jafnframt fjölbreytt störf innan fyrirtækisins og svaraði spurningum nemenda um menntun og færni sem nýtist í greininni. Nemendum gafst þannig tækifæri til að kynna sér ólík störf og fá hugmyndir um framtíðina.
