Þrifin taka við að loðnuvertíð lokinni

Deila:

Að lokinni loðnuvertíð taka við umfangsmikil þrif um borð í skipunum og nú má sjá áhafnir uppsjávarskipa við að spúla og skrúbba skip sín hátt og lágt. Þetta kemur fram á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Þegar Börkur NK lauk veiðum nýverið var skipið í höfn í Neskaupstað þar sem áhöfnin hóf þegar tiltekt. Háþrýstispúlur og hreinsibúnaður voru teknir í notkun og allt skipið þrifið af mikilli nákvæmni, jafnt lestir sem dekk og annar búnaður.

Ljósmyndari náði myndum af störfunum sem sýna vel hvernig gengur fyrir sig þegar loðnuskip eru gerð klár fyrir næsta verkefni. Að því er fram kemur er ljóst að skipin verða tilbúin og í toppstandi þegar kolmunnaveiðar hefjast, en þær eru næst á dagskrá hjá uppsjávarskipunum.

Deila: