Ný farþegamiðstöð fær nafnið Vör

Deila:

Ný fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóhafna í Reykjavík hefur hlotið nafnið Vör eftir metþátttöku í nafnasamkeppni.

Alls bárust 6.025 tillögur frá 3.384 einstaklingum og er það Íslandsmet í sögu nafnasamkeppna hérlendis, bæði hvað varðar fjölda tillagna og þátttakenda. Nafnið Vör var þriðja algengasta tillagan en alls bárust 115 tillögur um það.

Gunnar Tryggvason hafnarstjóri segir á vef Faxaflóahafna ánægju ríkja með niðurstöðuna. „Fyrir hönd Faxaflóahafna og allra sem koma að því að reisa þessa nýju fjölnota farþegamiðstöð í Reykjavík vil ég þakka fyrir þennan mikla áhuga og þátttöku í nafnasamkeppninni. Dómnefndin hafði úr fjölda góðra tillaga að velja og ég er afskaplega sáttur við að húsinu hafi verið fundið þetta fallega og viðeigandi nafn. Vör ber með sér skýra tengingu við hafið og hlutverk hússins, sem lendingarstaður skipa og ferðalöngum skjól,“ er haft eftir Gunnari.

Vigdís Hafliðadóttir, formaður dómnefndar, segir nafnið eiga sér djúpar rætur. „Vör er fallegt rótgróið orð úr íslenskri menningu, sem ný kynslóð fær nú að kynnast. Orðið þýðir lendingarstaður báta, Vör er líka gyðja visku og varkárni í Norrænni goðfræði og svo býður orðið líka upp á skemmtilega orðaleiki og við vonum að fólk hlakki til að mæta í veislu í Vör með bros á vör,“ segir hún.

Sigurtillagan kom frá Völu Steinsdóttur en valið réðst með hlutkesti á milli þeirra sem lögðu fram sterkasta rökstuðninginn. Í rökstuðningi hennar segir að Vör vísi til staðar komu og samveru þar sem ferðalangar og borgarbúar mætast og að nafnið endurspegli hlutverk hússins skýrt.

Farþegamiðstöðin mun taka á móti fyrstu farþegum skemmtiferðaskipa í vor og markar opnun hennar tímamót í móttöku slíkra skipa hér á landi. Hún er fyrsta sérhæfða farþegamiðstöð landsins fyrir skemmtiferðaskip og jafnframt sú fyrsta sem rís í Reykjavík í 60 ár.

Utan annatíma, yfir vetrarmánuðina, verður húsið nýtt fyrir viðburði og veislur og getur tekið allt að 2.000 gesti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Faxaflóahöfnum.

Deila: