Smábatar skapi fleiri störf

Deila:

Smábátar og strandveiðar hafa skapað mun fleiri störf en kvótakerfið, að því er fram kemur í grein Kjartans Páls Sveinssonar formanns Landssambands smábátaeigenda, sem birtist í Morgunblaðinu.

Í greininni segir að sjómannsstörfum hafi fjölgað verulega á síðustu árum og að þróunin tengist einkum strandveiðum. „Sjómannsstörfum hefur fjölgað um 27% frá 2010. Strandveiðar skapa þrisvar sinnum fleiri störf per veitt tonn og því mikilvæg að stjórnvöld efni loforð um 48 daga,“ segir í greininni.

Þar kemur einnig fram að störfum hafi fjölgað mest utan höfuðborgarsvæðisins og að strandveiðikerfið hafi haft afgerandi áhrif á byggðir landsins. Bent er á að árið 2024 hafi um 3.700 manns haft sjómennsku að aðalstarfi.

Formaður LS segir jafnframt að samanburður sýni mikinn mun á atvinnusköpun milli kerfa. „Í stærri kerfum eru þau mjög líkleg til að fækka störfum,“ segir í greininni, en á móti skapi skapi strandveiðar fleiri störf og dreifi þeim betur um landið.

Hann leggur áherslu á að strandveiðar séu mikilvægar fyrir byggðaþróun og atvinnulíf víða um land og að tryggja þurfi stöðugleika í kerfinu.

Deila: