Fullfermi í þrígang

Eyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE hafa verið á mikilli veiði síðustu daga og landað þrisvar sinnum fullfermi hvort á innan við viku. Skipin lönduðu í Þorlákshöfn í gær og voru skipstjórar ánægðir með aflabrögðin. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Egill Guðni Guðnason skipstjóri á Vestmannaey segir að um hafi verið að ræða mjög góða veiði. „Þetta hefur gengið mjög vel síðustu dagana en við höfum verið að veiðum á Selvogsbankanum. Aflinn í túrnum núna var mest þorskur og ufsi ásamt blöndu af öðrum tegundum. Það eina sem skyggði á þennan túr var veðrið en það var kaldi og stormur til skiptis allan tímann. Í reyndinni er merkilegt hvað hefur gengið vel síðustu dagana miðað við að það hefur meira og minna verið vitlaust veður,“ segir Egill Guðni.
Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey tekur í sama streng. „Þetta var stutt og laggott hjá okkur. Hörkufiskirí, en við vorum núna á Pétursey allan tímann. Aflinn var mest ýsa og þorskur en það var ufsi og fleira með. Þetta er virkilega fínn fiskur sem fæst þarna. Menn eru bara mjög hressir með aflabrögðin eins og þau hafa verið og það eina sem skyggir á er veðrið sem mætti vera mun betra,“ segir Jón.
Að löndun lokinni héldu bæði skipin til Vestmannaeyja og er ekki gert ráð fyrir að þau haldi til veiða á ný fyrr en um helgina vegna slæmrar veðurspár. Jón segir útlit fyrir „suðvestan helvítis öldu“ á næstu dögum.
