Gullver og Jóhanna Gíasladóttir seld

Deila:

Síldarvinnslan er um þessar mundir að gera breytingar á útgerð ísfisktogara sinna. Útgerð togaranna Gullvers NS og Jóhönnu Gísladóttur GK verður hætt en þess í stað hefst útgerð togarans Birtings NK.

Gullver NS landaði 110 tonnum í Hafnarfirði í gær og lauk þar með síðustu veiðiferð skipsins í eigu félagsins. Skipið hefur verið auglýst til sölu. Þá mun Jóhanna Gísladóttir GK ljúka veiðum fyrir Síldarvinnsluna um komandi mánaðamót og verður einnig sett á söluskrá.

Gullver var smíðaður í Flekkefjord í Noregi og kom nýr til Seyðisfjarðar í júlí 1983, þar sem hann var gerður út af Gullbergi hf. Síldarvinnslan eignaðist skipið þegar félagið keypti Gullberg árið 2014 og hefur síðan gert það út frá Seyðisfirði.

Skipið er 674 tonn að stærð með 1770 hestafla vél og hefur reynst vel í gegnum tíðina. Nú hefur það hins vegar lokið hlutverki sínu í flotanum og óljóst er hver framtíð þess verður. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Deila: