Mastur er nýtt fyrirtæki í sjávarútvegstækni

Nýtt fyrirtæki á sviði sjávarútvegstækni, Mastur ehf., hefur hafið starfsemi í samstarfi við Micro, að því er fram kemur í tilkynningu. Félagið sérhæfir sig í þjónustu, varahlutum og þróun búnaðar fyrir fiskvinnslu.
Mastur er stofnað af hjónunum Silfá Huld Bjarmadóttur og Elvari Stefánssyni og byggir á reynslu aðila sem starfað hafa við sölu, þróun og rekstur tæknilausna í íslenskum sjávarútvegi. Þau störfuðu áður hjá Vélfagi, sem markaðasstjóri annars vegar og framleiðslustjóri hins vegar.
Starfsemin felur meðal annars í sér þjónustu og viðhald á fiskvinnslubúnaði, sölu varahluta og þróun nýrra lausna með áherslu á áreiðanleika og hraða þjónustu.
Fyrirtækið hefur þegar hafið afhendingu til viðskiptavina og unnið er að frekari verkefnum á næstu misserum. Samhliða er verið að byggja upp þjónustunet og efla tengsl við viðskiptavini og samstarfsaðila bæði innanlands og erlendis.
Í stjórn félagsins sitja Magnús Rúnar Guðmundsson stjórnarformaður, Silfá Huld Bjarmadóttir og Gunnar Óli Sölvason, en Elvar Stefánsson er framkvæmdastjóri.
