Verkfræði lykilþáttur í landeldi

Í nýju tölublaði Sóknarfæris er fjallað um uppbyggingu fiskeldis á landi og þá sérhæfðu verkfræðiþekkingu sem slík starfsemi krefst.
Í greininni segir að „fiskeldi er ein hraðast vaxandi grein matvælaiðnaðarins á heimsvísu og gegnir lykilhlutverki í að mæta aukinni eftirspurn eftir próteinríkri og sjálfbærri fæðu.“ Þá er bent á að landeldi hafi fest sig í sessi sem „tæknilega flókin en umhverfislega hagkvæm lausn“.
Fjallað er um að framleiðslan byggi á flóknum kerfum þar sem „samspil vatnsmeðhöndlunar, orkunýtingar, sjálfvirkni, raforku- og stjórnkerfa ræður úrslitum um árangur“ og að uppbygging slíkra verkefna krefjist víðtækrar samþættingar verkfræðigreina.
Einnig er komið inn á aukna þróun og nýsköpun á sviðinu. „Þar sem fiskeldi á landi er tiltölulega nýtt á stórum skala er tæknin enn í mótun og tækifærin óteljandi í að betrumbæta lausnir,“ segir í greininni.
Sérstaklega er fjallað um verkefni EFLU fyrir Laxey í Vestmannaeyjum þar sem fyrirtækið hefur komið að uppbyggingu landeldisstöðvar frá fyrstu hugmynd. Þar kemur fram að fullbúin stöð geti alið allt að 42.000 tonn af laxi á ári með sjálfbærum lausnum.
Að því er fram kemur í Sóknarfæri sameinar fiskeldi á landi verkfræði, umhverfisfræði og nýsköpun á einstakan hátt og gegnir vaxandi hlutverki í framtíð matvælaframleiðslu.