Metár og mikill vöxtur hjá Arctic Fish

Deila:

Daníel Jakobsson hjá Arctic Fish.

„Framleiðslan hjá Arctic Fish gengur mjög vel um þessar mundir. Við höfum aldrei sett jafn marga fiska í sjó og í fyrra og árið var líka metár bæði hvað varðar framleiddar og seldar afurðir. Fyrirtækið hefur því dafnað vel síðustu ár, aukið umsvif sín frá ári til árs og smám saman nálgumst við það magn sem við höfum leyfi fyrir í sjó,“ segir Daníel Jakobsson forstjóri Arctic Fish í viðtali í nýju tölublaði Sóknarfæris.

Framleiðsla fyrirtækisins jókst um 40% milli áranna 2024 og 2025 og nam 14.800 tonnum í fyrra. Stefnt er að 17.000 tonna framleiðslu í ár og að fullnýtingu leyfa, eða 24 þúsund tonnum, árið 2029.

Í viðtalinu er meðal annars fjallað um hvernig fyrirtækið vinnur að því að bæta nýtingu leyfa með stærri seiðum, stöðu rekstrarins og áskoranir tengdar skattlagningu greinarinnar. Þar kemur fram að afkoma fiskeldisfyrirtækja hafi verið erfið síðustu ár þrátt fyrir góða framleiðslu.

Einnig er rætt um nýja lagaumgjörð fiskeldis, þörf á aukinni fjárfestingu og samkeppnisskilyrði á alþjóðamörkuðum. Þá er vikið að þeirri þekkingu sem hefur byggst upp í kringum greinina og mikilvægi hennar fyrir atvinnulíf á Vestfjörðum.

Að því er fram kemur í viðtalinu telur Daníel að tækifæri séu til verulegs vaxtar í íslensku fiskeldi á komandi árum ef rétt skilyrði skapast. Þetta kemur fram í viðtali við hann í Sóknarfæri.

Deila: