SFS styrkir Bláa herinn

Deila:

Blái herinn heldur áfram öflugu starfi við hreinsun strandlengjunnar og hefur nú gert styrktarsamning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Þetta kemur fram í tilkynningu. Markmið samningsins er að stuðla að hreinni ströndum, efla umhverfisvitund og styðja við ábyrgð í umgengni við haf og strendur Íslands.

Blái herinn, undir forystu Tómasar J. Knútssonar, hefur frá stofnun verið í fararbroddi í strandhreinsun hér á landi. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu samtakanna hafa yfir 76.000 vinnustundir farið í rúmlega 300 verkefni með þátttöku 9.600 sjálfboðaliða. Alls hafa þeir hreinsað yfir 1.550 tonn af rusli úr náttúru Íslands.

Samkvæmt samningnum munu Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi greiða Bláa hernum mánaðarlegt framlag. Samningurinn tók gildi í byrjun árs og gildir út árið.

Myndin er af vef SFS

Deila: