Þrír milljarðar greiddir í arð

Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. var haldinn í Safnahúsinu í Neskaupstað og rafrænt 19. mars 2026. Fundinn sóttu hluthafar sem fóru með um 88% hlutafjár, að því er fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Á fundinum var ársreikningur samstæðunnar og móðurfélags samþykktur. Einnig var samþykkt að greiða arð á árinu 2026 vegna rekstrarársins 2025 sem nemur 1,67 krónu á hlut, alls 3.075 milljónum króna, sem jafngildir 24,6 milljónum Bandaríkjadala miðað við lokagengi ársins 2025.
Starfskjarastefna félagsins var samþykkt óbreytt og jafnframt var ákveðið að stjórnarlaun fyrir árið 2026 verði 750.000 krónur á mánuði til stjórnarformanns en 500.000 krónur til annarra stjórnarmanna. Varamenn fá 250.000 krónur á mánuði.
Í stjórn félagsins voru kjörin Anna Guðmundsdóttir, Baldur Már Helgason, Erla Ósk Wissler Pétursdóttir, Guðmundur Rafnkell Gíslason og Þorsteinn Már Baldvinsson. Varamenn eru Ingi Jóhann Guðmundsson og Katla Þorsteinsdóttir.
Samþykkt var að endurskoðunarfélagið PricewaterhouseCoopers ehf. verði endurskoðandi félagsins næsta ár og einnig var tillaga stjórnar um skipan í endurskoðunarnefnd samþykkt, þar sem Guðmundur Kjartansson löggiltur endurskoðandi var tilnefndur.
Að lokum samþykkti aðalfundurinn að framlengja heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum í félaginu til næstu átján mánaða, að því er fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar.