Humarveiðar stöðvaðar – ráðlagt að kanna stofninn

Deila:

Hafrannsóknastofnun leggur til að humarveiðar verði ekki heimilaðar árið 2026, en á sama tíma er ráðlagt að fara í sérstakar könnunarveiðar til að afla frekari upplýsinga um stöðu stofnsins. Þetta kemur fram í nýrri ráðgjöf stofnunarinnar.

Tillagan byggir á varúðarsjónarmiðum, en fram kemur að ósamræmi sé á milli vísitölu humarholna og gagna úr togleiðöngrum. Því sé mikilvægt að safna frekari upplýsingum um aflabrögð og stærðarsamsetningu stofnsins áður en ákvörðun um veiðar verði endurskoðuð.

Samkvæmt mælingum árið 2025 var hár þéttleiki humarholna við Suðausturland, meðal annars í Skeiðarár-, Breiðarmerkur-, Hornfjarðar- og Lónsdjúpi. Á öðrum svæðum mældist þéttleikinn minni, en þó hefur aukning orðið víðast hvar frá árinu 2021 þegar stofninn var í lágmarki.

Í sömu ráðgjöf fjallar Hafrannsóknastofnun um nýtingu stórþara við Norðurland. Þar er lagt til að heimiluð verði nýting upp á rúm 46 þúsund tonn á átta svæðum, sem samsvarar um tveimur prósentum af áætluðum lífmassa þarans á þeim svæðum.

Mælingar á útbreiðslu og lífmassa stórþara fóru fram á árunum 2019 til 2023. Útbreiðsla var metin með bergmálsmæli en lífmassi með um 65 uppskerumælingum á 10 og 15 metra dýpi sem kafarar framkvæmdu. Gögnin hafa nú verið unnin og birt sem hluti af ráðgjöf stofnunarinnar.

Við ákvörðun á nýtingu voru átta svæði undanskilin, meðal annars vegna mikilvægis þeirra fyrir seli og fugla. Þau verða jafnframt nýtt til samanburðar þegar áhrif nýtingar verða metin.

Rannsóknir á áhrifum þaragreiðu á þarastofninn sýna að hún tekur fyrst og fremst stærstu og elstu plönturnar en skilur eftir yngri plöntur sem vaxa hratt upp eftir skurð.

Deila: