Nýjar námsleiðir í lagareldi kynntar

„Við erum á fullu að auka og efla menntunarstigið í þessari atvinnugrein en það er skýrt ákall þar um frá greininni sjálfri og hefur verið lengi. Við höfum brugðist við því kalli og eigum á hverjum tíma gott samtal við forsvarsmenn fyrirtækja í greininni um hver þörfin er og hvernig best er að bregðast við henni,“ segja þau Bjarni Kristófer Kristjánsson prófessor og deildarstjóri fiskeldis- og fiskalíffræðideildar og Eva Kuttner rannsóknastjóri við Háskólann á Hólum. Við hann er rætt í nýju tölublaði Sóknarfæris.
Frá næsta hausti verða tvær nýjar námsleiðir í lagareldi í boði, annars vegar BS-nám í samstarfi við Háskólann á Akureyri og hins vegar nýtt meistaranám sem unnið er í samstarfi margra háskóla og rannsóknastofnana.
Í viðtalinu er farið yfir uppbyggingu fiskeldisnáms á Íslandi sem hefur þróast samhliða hraðri vexti greinarinnar á undanförnum áratugum. Þá er fjallað um núverandi námsframboð, þar á meðal diplómanám sem hefur verið vinsælt meðal starfandi í greininni.
Einnig er komið inn á nýja BS-námið sem veitir bæði fræðilegan og hagnýtan grunn í fiskeldi, auk þess sem fjallað er um samnorrænt meistaranám sem hefur notið mikilla vinsælda.
Þá er gerð grein fyrir nýju rannsóknatengdu meistaranámi þar sem fimm háskólar og fleiri stofnanir koma að, með áherslu á sveigjanlegt nám, fjölbreytt valnámskeið og náið samstarf við atvinnugreinina.
