ELDI sam­einar alla fisk­eldisþjónustu Hampiðjunnar

Deila:

„Laxeldi í sjó er komið til að vera og allt bendir til að framleiðsla á sjóöldum laxi komi til með að aukast á komandi árum, bæði hérlendis og erlendis. Markmið okkar er að fylgja þessari þróun markvisst eftir með því að sameina alla fiskeldisþjónustu Hampiðjunnar undir einu öflugu alþjóðlegu merki og gera enn betur í nýsköpun, vöruþróun og þjónustu á öllum sviðum greinarinnar,“ segir Hjörtur Erlendsson forstjóri Hampiðjunnar og stjórnarformaður ELDI, í nýju tölublaði Sóknarfæris.

„Til að setja stærðargráðuna í betra samhengi má segja að markaðshlutdeild okkar sé um þriðjungur af þjónustu við fiskeldi í sjó við Norður-Atlantshaf. Það stóra skref sem stigið er með stofnun ELDI á sér í reynd talsverðan aðdraganda. Hampiðjan hefur byggt markvisst upp fiskeldisþjónustu hér heima og erlendis mörg undanfarin ár. Þannig eignuðumst við fyrirtækið Vónina í Færeyjum árið 2016 og keyptum síðan Mørenot í Noregi árið 2023. Það er ekkert fyrirtæki í fiskeldi með jafn margar þjónustustöðvar og við,“ segir hann.

Í viðtali er farið yfir stofnun ELDI sem er nýtt dótturfélag Hampiðjunnar þar sem öll fiskeldisþjónusta samstæðunnar hefur verið sameinuð undir einu merki. Félagið tók til starfa í byrjun árs og hefur höfuðstöðvar í Noregi.

Fjallað er um umfang starfseminnar sem spannar fjölmörg lönd og hundruð starfsmanna, sem og uppbyggingu þjónustunets sem nær yfir lykilmarkaði í fiskeldi.

Einnig er farið yfir þann ávinning sem felst í sameiningunni, meðal annars aukna samlegð, öflugra bakland í tækniþróun og betri þjónustu við viðskiptavini.

Þá er fjallað um mikla áherslu á nýsköpun og vöruþróun, þar sem meðal annars eru þróaðar lausnir sem draga úr umhverfisáhrifum fiskeldis og bæta rekstur og velferð í sjóeldi.

Deila: