Stofnun atvinnuveganna áformuð

Matvælastofnun, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs verða lagðar niður og starfsemi þeirra sameinuð í nýrri Stofnun atvinnuveganna, samkvæmt frumvarpi atvinnuvegaráðherra sem lagt var fram á Alþingi í gær.
Samkvæmt frumvarpinu mun ný stofnun fara með stjórnsýsluverkefni á sviði sjávarútvegs, fiskveiða, lagareldis, lax- og silungsveiði, fiskræktar, matvælamála, dýravelferðar og heilbrigðis dýra og plantna. Þá mun matvælaeftirlit færast frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaga til stofnunarinnar.
Gert er ráð fyrir að lögin taki gildi 1. janúar 2027. Við það verða embætti forstjóra Matvælastofnunar, fiskistofustjóra, forstöðumanns Verðlagsstofu skiptaverðs og yfirdýralæknis lögð niður ásamt öðrum störfum hjá stofnununum.
Starfsfólk sem sinnir verkefnum sem flytjast til nýrrar stofnunar og uppfyllir hæfisskilyrði fær forgang að störfum hjá Stofnun atvinnuveganna við stofnun hennar. Sama á við um starfsfólk heilbrigðisnefnda sveitarfélaga sem starfað hefur við matvælaeftirlit.
Ráðherra mun skipa forstjóra stofnunarinnar til fimm ára í senn.
Í greinargerð með frumvarpinu segir að með sameiningunni verði hægt að taka upp heildstæðari nálgun í eftirliti, samræma verklag og einfalda ferla, meðal annars við leyfisveitingar. Það eigi að auka gagnsæi, draga úr skrifræði og bæta þjónustu.
