Þórunn Sveinsdóttir fer úr Eyjum

Deila:

Þórunn Sveinsdóttir VE lagði af stað til Færeyja á sunnudag þar sem skipið verður afhent nýjum eigendum, Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði. Þetta kemur fram á vef Vinnslustöðvarinnar.

Skipið fer í slipp við komuna og verður þá afhent, en jafnframt stendur til að skipta um gír og gefa því nýtt nafn, Ljósafell SU.

Þórunn hefur verið í flota Vinnslustöðvarinnar frá árinu 2023 og hefur reynst vel í rekstri, bæði í hefðbundnum veiðum og rannsóknarverkefnum fyrir Hafrannsóknastofnun, að því er segir á vefnum.

Skipið var smíðað árið 2010 fyrir Útgerðarfélagið Ós og er öflugt og nútímalegt skip sem enn stenst vel samanburð við nýrri skip.

Í fréttinni kemur fram að eftirsjá sé að skipinu úr Eyjum, en jafnframt ánægja með að það fari í hendur nýrra eigenda á Fáskrúðsfirði.

Deila: